Episodes

Jul 27, 2024
Jul 27, 2024
48 min
Þórarinn ræðir um skakkar hugmyndir kynfræðings um fjármagn innan íslenskrar stjórnsýslu og kosningar í Bandaríkjunum. Til að styðja við þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling

Jul 6, 2024
Jul 6, 2024
45 min
Þórarinn ræðir um úrslit kosninganna um setu á breska þinginu og hvaða áhrif þau kunnu að hafa á stjórnmálin hér á landi.
- Hvað þýðir sigur Verkamannaflokksins fyrir Sjálfstæðisflokkinn?
- Mun Samfylkingin ná sama árangri?
- Afhverju fer fólk úr Samfylkingunni þegar það gengur vel?
- Afhverju brugðust markaðir jákvætt við því að vinstriflokkur náði stjórn?
Þessum spurningum er svarað hér.

Jun 28, 2024
Jun 28, 2024
43 min
Þórarinn ræðir um nýa skilgreiningu hægrisins. - Hvað er öfgahægrið? - Eru grínistar mælikvarði á rétttrúnaðinn? - Er samfylkingin öfgahægriflokkur? - Er Bjarni ben ánægður með þjóðarmorð? Þessum spurningum er svarað hér. Styrkja má þetta framtak hér: www.pardus.is/einpaeling
Hlaðvarp við Konstantin Kisin: https://www.youtube.com/watch?v=QNRIk...
Konstantin Kisin um öfgahægrið: https://www.youtube.com/watch?v=QIGx3...

Jun 20, 2024
Jun 20, 2024
47 min
Þórarinn ræðir sálfræðimeðferðir á samfélagsmiðlum og iðnaðinn í kringum þær. Afhverju eykst vanlíðan samhliða aukinni notkun geðlyfja og umræðu? Hvaða áhrif hafa síauknar áherslur á því að opna sig um erfiðleika og geðkvilla á samfélagsmiðlum? Hér er þessum spurningum svarað.

Jun 11, 2024
Jun 11, 2024
35 min
Þórarinn fjallar um leyfisveitingar, stjórnmálin og afleiddar afleiðingar þess hve svifasein stjórnsýslan á Íslandi er. Einnig er fjallað um breyttar áherslur í málflutningi Kristrúnu Frostadóttur og Björns Leví Gunnarssonar sem að virðist vera að færast í átt að röksemdarfærslum Milton Friedman.

Jun 1, 2024
Jun 1, 2024
40 min
Þórarinn ræðir afhverju umræða um afhverju umræður um vandamál séu þannig að lögmál virðist vera að þau muni koma til með að aukast.
- Er stóuspeki og hugleiðingar Ágústar Árelíusar dottin úr tísku?
- Er Halla Gunnarsdóttir að fara að eltast við kjörna fulltrúa?
- Hverjir græða á vandamálunum?
- Gerir kvennaathvarfið lítið úr heiðursglæpum?
Þessum spurningum er svarað hér.
Til þess að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling

May 23, 2024
May 23, 2024
40 min
Þórarinn ræðir um áherslu stjórn- og áhrifavalda til þess að breyta tungumálinu til þess að þóknast pólitískum hugðarefnum.

May 16, 2024
May 16, 2024
52 min
Þórarinn fjallar um vondar hugmyndir í samhengi við góðar hugmyndir. Afhverju kjósa samfélög að fylgja vondum hugmyndum? Hvaða áhrif hefur skoðanakúgun á samfélagsgerð og framþróun? Hver er staða háskólasamfélaga í hinum Vestræna heimi gagnvart upplýsingagjöf og áhrif? Þessum spurningum er svarað hér.

May 9, 2024
May 9, 2024
31 min
Þórarinn ræðir hugmyndir Niall Ferguson, Jonathan Haidt, Mark Lilla og Andrew Doyle um hvernig sértrúarsöfnuðum hefur tekist að gera akademískar stofnanir og virta háskóla að aðhlátursefni á undanförnum árum.

May 3, 2024
May 3, 2024
34 min
Þórarinn ræðir um eftirfarandi hluti:
- Hvað gerist þegar inngilding mistekst?
- Afhverju var Women's March bara haldið einu sinni?
- Hvers vegna misnotar öfgafólk réttindabaráttur til þess að koma sjálfu sér á framfæri?
- Afhverju neitaði nýja Samfylkingin tillögu gömlu Samfylkingarinnar í útlendingamálum?

